Húsin gerast varla flottari en þetta sem stendur á fallegum stað í Mosfellsbæ. Húsið var teiknað af Tark arkitektastofunni og var sérstaklega vandað til verka. Húsið er 300 fm, á einni hæð og með útsýni yfir bæinn.
Anddyrið er rúmgott og stofan sérlega björt og falleg. Eldhúsið er með fallegri háglansandi innréttingu sem var sérsmíðuð hjá GKS trésmiðju og Uno Form í Danmörku. HÉR er hægt að skoða húsið nánar.