Í Neðra Breiðholti er að finna stórglæsilegt einbýlishús sem að fær hjartað til að slá örlítið hraðar. Um er að ræða 300 fermetra hús á tveimur hæðum en þar af er 40 fermetra bílskúr.
Húsið er allt nýtekið í gegn og ekki er laust við að skandinavískur andi svífi yfir vötnum. Parketið í stofunni er úr aski og flestar innréttingar hússins eru sérsmíðaðar og bera smekkvísi eigendanna merki.
Útsýnið er ekki amalegt, né staðsetninginn en Neðra Breiðholtið hefur getið sér orð sem einstaklega rólegt og barnvænt hverfi, sem er glettilega miðsvæðis og stutt í alla þjónustu.
Nánar má lesa um eignina hér.