Þau eru þekkt fyrir allt annað en framúrskarandi smekklegheit en nýjasta heimili Osbourne fjölskyldunnar í Los Angeles er vægast sagt guðdómlegt.
Hönnuðurinn Martyn Lawrence-Bullard fékk það vandasama verkefni að hanna heimili fjölskyldunnar féllust honum nánast hendur. Hann ákvað þó að taka verkið að sér og útkoman er frábær eins og sjá má nánar ef smellt er á hlekkinn hér að neðan. Helsta áskorunin hafi verið að hemja kaupæði Sharon Osbourne sem vildi helst kaupa allt sem hún sá.
Fjallað var um hýbýli fjölskyldunnar í Architectual Digest og fleiri myndir má skoða hér.