Aðventukransaleikur Smartlands Mörtu Maríu og IKEA sló í gegn. 10 kransar eru komnir í úrslit. Þú getur tekið þátt í að velja verðlaunakransinn. Það eina sem þú þarft að gera er að fara inn á Facebooksíðu Smartlands Mörtu Maríu og smella á „like“ við þann krans sem þér finnst fallegastur. Sá krans sem safnar flestum „like-um“ sigrar.
Það er til mikils að vinna því IKEA ætlar að færa sigurvegaranum 30.000 króna gjafakort í IKEA en annað og þriðja sæti hreppa 10.000 króna gjafakort.
Hægt verður að „læka“ til hádegis 8. desember næstkomandi.