Ein af glæsilegri penthouse-íbúðum borgarinnar er auglýst til leigu á 390 þúsund krónur á mánuði á fasteignavef mbl.is. Um er að ræða sex herbergja íbúð. Hún er 241 fm að stærð.
Íbúðin er á tveimur hæðum, á tvö stæði í bílageymslu og með einkalyftu beint upp í íbúðina. Stórir gluggar og suðursvalir bjóða upp á vítt og fallegt útsýni yfir miðbæinn.
Í auglýsingu segir að íbúðin ætti að höfða til þeirra allra vandlátustu, sem kjósa lúxus-híbýli og bestu staðsetninguna í bænum.