Það er unaðslegt að sjá hvað vel hefur tekist til í hönnun á einbýli nokkru í Karlsruhe í Þýskalandi. Vandaða handbragðið sést langar leiðir og það er gaman að sjá samspil vatns og steins í garðinum fyrir utan húsið.
Arkitektastofan Dettling hannaði húsið í hólf og gólf og mega þeir vera stoltir af vinnunni sinni.