Listamennirnir Ragnar Kjartansson og Ásdís Sif Gunnarsdóttir hafa sett íbúð sína á sölu. Íbúðin er 97 fm og afar hugguleg. Íbúðin er á Laugaveginum og á efstu hæð. Úr íbúðinni er útsýni yfir borgina en í henni eru stórir gluggar í suður auk stórra svala sem vísa í sömu átt.
Íbúðin er skemmtilega innréttuð með fallegum húsgögnum úr ýmsum áttum. HÉR er hægt að skoða hana betur.