Hún er ekki á flæðiskeri stödd enda svo sem engin ástæða til þar sem foreldrar hennar eru með valdamesta fólki heims. En doktorsneminn og NBC fréttakonan (og fyrrum forsetadóttirin) Chelsea Clinton er þessa dagana að festa kaup á forláta íbúð í Whitman byggingunni í New York. Íbúðin er við Madison Square garðinn og því ætti hún að vera snögg í vinnuna en höfuðstöðvar NBC eru þar rétt hjá.
Í húsinu eru einungis fjórar íbúðir, hver um sig tæpir 500 fermetrar að stærð. Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi og fimm og hálft baðherbergi. Að sjálfsögðu er lyfta í byggingunni sem og líkamsræktarstöð. Fullyrt er að foreldrar hennar, Hillary og Bill Clinton hafi litið á íbúðina í síðustu viku og litist vel á. Settar eru 1300 milljónir á íbúðina sem þykir nokkuð sanngjarnt á þessum slóðum.