Þegar nýtt ár gengur í garð huga margir að nýjum tækifærum og gera jafnvel breytingar á lífi sínu. Breytingarnar geta verið allskonar en fyrir þá sem hefur alltaf dreymt um að búa í húsbíl gæti draumurinn verið handan við hornið. Hjá Netbílum í Hlíðasmára er dýrasti húsbíll landsins til sölu.
Um er að ræða bíl af gerðinni IVECO DAILY 70 C17, Morelo Palace 90 LS, árgerð 2013. Aðeins er búið að keyra bílinn 600 km og er hann sem nýr. Á veg Netbíla kemur fram að um einstakan lúxusbíl sé að ræða. Húsbíllinn er með díselvél og hvítur að lit.
HÉR er hægt að skoða hann nánar.