Falleg 79 fm íbúð með sérinnangi í reisulegu húsi við Marargötu í miðbæ Reykjavíkur er komin á sölu. En eignin var til að mynda eitt sinn í eigu Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur sjónvarpskonu og eiginmanns hennar Hauks Inga Guðnasonar.
Íbúðin er fallega máluð í bláum tónum sem passar einstaklega vel við húsið enda stendur það við götu sem dregur nafn sitt af hafinu. Listar og rósettur fá að njóta sín og koma vel út með málningunni.
Innanstokkmunir eru smekklegir og fallegir og listaverkin njóta sín einstaklega vel.