Sif Friðleifsdóttir nýtir sér sumartímann til að láta til sín taka í eldhúsinu: Hugsa mikið um hollustuna í matargerðinni

Sif Friðleifsdóttir í Frú Lauga
Sif Friðleifsdóttir í Frú Lauga Árni Sæberg

Alþingi er komið í sumarfrí en ýmis verkefni loða engu að síður við þingmennina. Siv er nýkomin heim frá Danmörku og Svíþjóð þar sem hún skoðaði svokölluð gettó en það eru hverfi þar sem eru talsverð félagsleg vandamál. Verkefnið var á vegum velferðarnefndar Norðurlandaráðs. Auk þess var hún í viðtali við The Guardian vegna tillögu sinnar um að færa sölu á tóbaki yfir í apótek. BBC hafði einnig óskað eftir viðtali um sama mál. Tóbaksmálið sem var umdeilt manna á meðal hérlendis er því farið að vekja athygli út fyrir landsteinana.

„Þegar þingið stendur yfir er oft lítill tími til að elda heima. Á sumrin hef ég meiri tíma og nýti mér hann,“ segir Siv þegar hún er spurð hvort hún sé dugleg í eldamennskunni. Hún á tvo syni, 18 og 26 ára, og sá yngri býr heima. „Ég er með létt heimili en reyni að elda fyrir synina, sérstaklega þann yngri. Sá eldri kemur stundum í mat með kærustuna. Þegar ég hef tíma finnst mér gaman að fá nánustu fjölskyldu í matarboð. Ég er frekar upptekin af hollum mat og reyni að velja góðan fisk eða kjöt og mikið af grænmeti. Ég er mjög oft með fisk og fæ ágætis einkunn fyrir eldamennskuna,“ segir Siv þegar hún er spurð hvort henni takist vel upp í matargerðinni.

Kökur frá Sólheimum

Siv segist oftast gera innkaup í Krónunni úti á Granda. Hún býr í Vesturbænum og segist kunna vel við þá verslun. „Hún er rúmgóð og þægilegt að versla þar. Ég er nýbúin að uppgötva Kost og líkar vel. Þar kaupi ég möndlur og þess háttar í stærri einingum. Ég fer stundum í aðrar verslanir einnig svo sem Bónus og Melabúðina, þar sem besti ananasinn fæst og mjög góðar flatkökur frá Sveitabakaríinu. Einnig kemur fyrir að ég fari í Kjöthöllina á Háaleitisbraut til að kaupa kjöt. Svo er það gimsteinninn Frú Lauga við Laugalæk. Þar er hægt að kaupa hollar og góðar vörur beint frá bændum. Þar hef ég fengið frábærar kökur frá Sólheimum, eplaböku og hjónabandssælu.“

Siv segist ekki hlaupa eftir tilboðum sem auglýst eru í blöðum. „Það er frekar ef ég rekst á þau í verslunum að ég notfæri mér þau.“

Hún ræktar sjálf kryddjurtir og grænmeti. „Það sést varla út um gluggana hjá mér fyrir basilplöntum og ég geri því stundum heimagert pestó,“ segir hún. „Ég rækta einnig kóríander og nokkrar gerðir af salati og sellerí úti. Besta vinkona mín, Heiður Björnsdóttir, kennir ræktun krydd- og matjurta og ég fór á námskeið hjá henni í fyrra. Síðan hef ég verið forfallin í ræktuninni en hún fer þó einungis fram í pottum.“

Hreinn matur

Þar sem Siv er meðlimur í Slow Food Reykjavík aðhyllist hún hefðbundna og holla matargerð sem er án aukefna. „Ég fór á veitingahús á Ítalíu sem gaf sig út fyrir að vera Slow Food og þar var boðið upp á hefðbundinn mat úr héraðinu sem gjarnan er árstíðabundinn. Þessi hugmyndafræði gengur líka út á að viðhalda þekkingu í gamalli matargerð. Hér á landi þurfum við t.d. að gæta þess að viðhalda geitastofninum svo ekki tapist þekkingin á geitamjólk og -ostum.“

Þegar Siv er spurð hvort hún noti útigrillið á þessum árstíma segist hún ekki eiga grill en það sé tímabundið. Til standi að bæta úr því. Þessa dagana hugsar hún mest um hollustuna.

„Ég fékk vonda, langvinna flensu í vor og hef verið að byggja mig upp með því að fá mér heilsudrykki og hef verið dugleg að taka vítamín. Þorskalýsi tek ég á hverjum morgni, eina litla matskeið, því mér var sagt að stór skeið væri of mikið magn. Einnig tek ég Omega 3, D-vítamín, acidophilus og fjölvítamín. Mér tókst sem betur fer að rífa úr mér flensuna,“ segir Siv sem auk þess er dugleg að stunda sjósund, ganga og trimma. Mótorhjólið hefur hins vegar staðið óhreyft.

Þegar sumarfríið gefst loks ætlar Siv að ferðast um Ísland og dvelja í sumarhúsum sem tengjast fjölskyldunni. Hún ætlar að gefa lesendum uppskrift af guacamole sem er í uppáhaldi hjá syninum með vefjum. „Ég nota spelt-tortillur og tel að þessi réttur sé góð leið til að koma grænmeti ofan í mannskapinn. Það er ágætt að nota kjúklingalundir, nautahakk eða skinku í vefjuna og mikið af grænmeti. Ég get nefnt tómata, agúrku, papriku eða bara hvaða grænmeti sem er eftir hugmyndaflugi hvers og eins. Síðan er sýrður rjómi og rifinn ostur,“ segir Siv Friðleifsdóttir að lokum.

Guacamole (lárperumauk)

2 avocado (lárperur)

2 hvítlauksrif

1 dl laukur, smátt saxaður

1 meðalstór tómatur

2 msk. chili-pipar

3 msk. límónu- eða sítrónusafi

¼ tsk. salt

½ tsk. pipar

Allt maukað saman.

Siv Friðleifsdóttir.
Siv Friðleifsdóttir. Ómar Óskarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert