Drykkurinn T-9 kemur frá barþjónunum á Slippbarnum á Marina. Drykkurinn inniheldur vínið Birki sem er alíslenskt.
4 cl Birkir
3 cl sterkt earl grey te
3 cl hunangssíróp (1 hluti hunang leyst upp í 1 hluta af vatni)
1,5 cl Triple sec líkjör
1,5 cl Limoncello
2,5 cl ferskur sítrónusafi
Allt sett í hristara með klaka og hrist vel. Sigtað með kokteilsigti og fínu sigti í kokteilglas. Þessi kokteill var skreyttur með graslauksblómi, endilega notið hugarflugið við að skreyta kokteila.