6. febrúar 2013 kl. 9:44
Eitt lykilatriða árangursríkrar tímastjórnunar er markviss
forgangsröðun. Margir hafa á orði þegar þeir eru búnir að gera lista með þeim
verkefnum sem á dagskrá eru að mjög erfitt sé að forgangsraða. Flest öll
verkefnin sem ég er með á minni könnu eru mjög mikilvæg. Gott og vel. Það er
líklegt að svo sé enda ekki miklar líkur á að fólk vinni að verkefnum sem engu
máli skipta. En staðreyndin er sú að það er alltaf hægt að forgangsraða ef við
bara neyðum okkur til þess. Með því að gera það tryggjum við að vinna okkar sé
eins markviss og mögulegt er. Prófaðu þessi þrjú ráð þegar þú rekst á
forgangsröðunarvegginn:
- Ímyndaðu þér að fundur sem þú áttir bókaðan falli skyndilega
niður og þú hefur óvæntan tíma til ráðstöfunar. Í hvaða verkefni grípur þú
fyrst? Líkur eru á að það sé mikilvægasta verkefnið. Líttu þó gagnrýnum augum
á það sem fyrst kemur upp í hugann því vel má vera að það sem fyrst verður
fyrir valinu sé það verkefni sem þér finnst skemmtilegast. Því miður þá er það
ekki svo að skemmtilegustu verkefnin séu endilega mikilvægust.
- Ímyndaðu þér að hið ótrúlega gerist. Yfirmaður þinn kemur
brosandi til þín og tilkynnir þér að hann hafi ákveðið að veita þér auka
starfsmann til aðstoðar í einn dag. Viðkomandi starfsmaður er öllum hnútum
kunnugur og getur gengið í öll þín verkefni. Í hvaða verkefni seturðu þennan aðila.
Aftur eru líkur á því að þau verkefni séu svo mikilvægustu (varnaðarorð úr
fyrsta lið eiga einnig við í þessu tilfelli. Gættu þess að setja viðkomandi
ekki í þau verkefni sem þér finnst leiðinlegust).
- Farðu skipulega niður listann og berðu saman tvö verkefni í
einu og spurðu þig, hvort er mikilvægara. Taktu svo næstu tvö og koll af kolli
þar til þú hefur farið í gegnum allan listann. Að þeirri yfirferð lokinni ættir
þú að vera með mikilvægustu atriðin efst.
Þegar forgangsröðun listans er lokið ertu betur í stakk
búin(n) til að takast á við daginn. Þú ert líklegri til að vinna í þeim
verkefnum sem raunverulega skipta máli, þú heldur einbeitingu og stýrir degi
þínum frekar en að láta aðra stýra því í hvað þú verð tíma þínum. Þú ert
líklegri til að fara heim í lok dags með þá hugsun í kollinum að þú hafir
raunverulega komið einhverju í verk í dag. Það er góð tilfinning.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Stjórnendaþjálfari og eigandi Vendum, www.vendum.is
unnur@vendum.is