Leikrit Jóns Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík, Hótel Volkswagen, var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Leiklistargagnrýnandinn Jón Viðar klappaði ekki að lokinni sýningu og reyndi að komast fyrstur út úr salnum. Þeir sem eftir sátu virtust þó skemmta sér vel.