Katrín Jakobsdóttir mætti með son sinn, Illuga Gunnarsson, á opnun Listahátíðar í Reykjavík í Brim-húsinu við höfnina.
Fluttur var skipsflautukonsertinn Vessel Orchestra eftir Lilju Birgisdóttur. Blásið var á skipslúðra skipanna í Reykjavíkurhöfn eftir fyrirmælum höfundarins, sem var með talstöð og stjórnaði flotanum í verki.
Guðmundur Kristjánsson, eigandi Brims, var afar ánægður með verkið og sagði að þetta væri sko alvörumúsík.