Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir voru hin hressustu í Hörpu þegar Stöð 2 kynnti vetrardagskrána. Í stað þess að halda hefðbundið kokteilpartí með dagskrárkynningu á myndbandi var allt partíið dregið í næsta sal þar sem fram fór bein útsending á Loga í beinni. Eftir að þættinum lauk var hópnum smalað inn í næsta sal þar sem Stuðmenn léku fyrir dansi.
Eins og sést á myndunum leiddist engum í þessu partíi og sumir brugðu meira að segja á leik.