Áslaug María Friðriksdóttir fagnaði framboði sínu í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á laugardaginn. Fagnaðurinn fór fram á splunkunýjum veitingastað Dóru Takefusa, Bast, sem er við Hverfisgötu.
Staðurinn er mikill partístaður og var sérstaklega góð stemning í boðinu en það er líklega vegna þess að Áslaug þekkir svo marga skemmtilega.