Það var glaumur og gleði á kosningaskrifstofu Halldórs Halldórssonar í Bolholti 4 þegar skrifstofan var opnuð formlega. Halldór er formaður Sambands íslenskra sveitafélaga og var áður bæjarstjóri á Ísafirði. Hann bauð upp á nettar veitingar í boðinu og eins og sést á myndunum skemmti mannskapurinn sér vel.