Eiríkur Bergmann fagnaði útgáfu bókar sinnar, Iceland and the International Financial Crisis: Boom, Bust and Recovery, með stæl í gær á 45 ára afmælisdaginn sinn. Boðið byrjaði á fyrirlestri en það var haldið á Reykjavíkurskrifstofum Bifrastar við Hverfisgötu. Eins og sést á myndunum var gleðin við völd hjá Eiríki enda var mikið af fólki með allskonar skoðanir sem liggur mikið á hjarta.