Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra mætti með eiginkonu sinni, Elvu Björk Guðmundsdóttur, í Hörpu í gær til þess að skemmta sér á árshátíð Stjórnarráðsins. Hann var ekki eini ráðherrann því Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mætti einnig ásamt eiginkonu sinni, Önnu Stellu Pálsdóttur, sem klæddist beige-litaðri slá frá íslenska tískuhúsinu ELLU í tilefni kvöldsins. Þar var líka Bjarni Benediktsson með eiginkonu sinni, Þóru Margréti Baldvinsdóttur, sem átti einmitt afmæli þennan dag.
Sama kvöld og árshátíðin fór fram í Hörpu var óperan Ragnheiður frumsýnd við mikinn fögnuð sýningargesta.