Magnús Scheving, sem gjarnan gengur undir nafninu íþróttaálfurinn, lét sig ekki vanta á frumsýningu Latabæjar og dansaði við Sollu stirðu í anddyri Þjóðleikhússins áður en leiksýningin hófst. Hann leikstýrir sýningunni ásamt Rúnari Frey Gíslasyni.
Magnús fer þó ekki með hlutverk íþróttaálfsins að þessu sinni heldur er það í höndum Dýra Kristjánssonar. Stefán Karl Stefánsson er á sínum stað sem Glanni glæpur og Melkorka Davíðsdóttir Pitt er hin nýja Solla stirða.