SuperdryStore var opnuð nýlega í Smáralind og af því tilefni var haldið glæsilegt teiti í versluninni sjálfri. Margt var um manninn en þar á meðal var nýjasta parið í bænum, Salka Sól Eyfeld og Arnar Freyr Frostason. Hann er í hljómsveitinni Úlfur Úlfur sem er afar vinsæl þessa dagana og Salka Sól er nánast í öllu sem er að slá í gegn þessa dagana eins og í Hróa Hetti í Þjóðleikhúsinu og í dómarasæti í The Voice á SkjáEinum.
SuperdryStore er býsna vinsæl í Bandaríkjunum en stjörnur á borð við Kylie Jenner eru mjög hrifnar af merkinu. Það er varla hægt að opna Instagram Jenner-systranna án þess að sjá þær í æfingafötum frá því.