Þessar konur kunna svo sannarlega að verðlauna sig með smá lúxus eins og túrtöppum og dömubindum í litríkum umbúðum.
Engin kona getur staðist fallegt dömubindi og þessar bresku konur eru engin undantekning. Þær nota myllumerkið #tampontax til að vekja athygli á að túrtappar og aðrar hreinlætisvörur eru skattlagðar sem lúxusvörur Í Bretlandi og víðar. Kaldhæðnin ræður að sjálfsögðu ríkjum hér.