Konan er of gömul

Manninum finnst konan of gömul.
Manninum finnst konan of gömul. mbl.is/Getty

„Eft­ir nokk­urra ára vina­sam­band bauð maður mér á stefnu­mót. Hann spurði hvað ég væri göm­ul á einu af fyrstu stefnu­mót­un­um og þá áttaði hann sig á því að ég var tíu árum eldri en hann (ég er að nálg­ast fimm­tugt). Þrátt fyr­ir að við lif­um svipuðu lífi, eig­um svipuð áhuga­mál og vini var hann ef­ins um ald­urs­mun­inn og hætti með mér í fyrra eft­ir hálft ár sam­an. Eft­ir nokkra mánuði byrjuðum við aft­ur sam­an og vor­um sam­an í ár. Hann hætti aft­ur með og sagði að hann kæm­ist ekki yfir ald­urs­mun­inn og að hann hefði hætt með fyrri maka vegna sömu ástæðu. 

Þetta snýst ekki um barneign­ir. Við kunn­um vel við og virðum hvort annað, njót­um þess að vera sam­an og erum hrif­in af hvort öðru, það eru eng­in illindi. Er kom­inn tími til að halda áfram og samþykkja and­lega tak­mörk­un hans?“ spyr kona les­end­ur The Guar­di­an. 

Les­end­ur liggja ekki á skoðunum sín­um. Marg­ir hafa góða reynslu af sam­bönd­um með mikl­um ald­urs­mun og telja vanda­málið sé hjá mann­in­um. 

„Svo... hann hef­ur tvisvar verið í sam­bandi við eldri konu jafn­vel þó að hann eigi í vand­ræðum með „ald­urs­mun­inn“. Það hljóm­ar eins og sam­bandið hafi verið gott og ekk­ert annað. Það er hann sem er að glíma við vanda­mál sem snýst um að hann vel­ur sér óhent­uga maka og það þarf að leysa. Hann hef­ur látið þig lausa og nú get­ur þú fundið ein­hvern sem á skilið tíma þinn og ást. Þú varst hepp­in að kom­ast und­an,“ skrifaði einn les­andi. 

Aldurinn setur strik í reikninginn.
Ald­ur­inn set­ur strik í reikn­ing­inn. mbl.is/​Thinkstockp­hotos
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda