Hin 18 ára gamla Kamilla Ívarsdóttir deildi í vikunni áhrifamikilli færslu á Instagram þar sem hún sýnir afleiðingar ofbeldis sem fyrrverandi kærasti hennar beitti hana. Í færslunni segir Kamilla frá reynslu sinni af því að vera föst í ofbeldissambandi.
„Hef verið að heyra mikið undanfarið hvað ég er heimsk og vitlaus að hafa farið aftur til ofbeldismannsins míns.
Það er ekki heimska og það er ekki vitleysa að fara aftur. Að slíta sig lausa frá svona manni er meira en að segja.
Margir búnir að dæma mig, margir búnir að missa álit á mér fyrir það og fleira. Núna langar mig aðeins og segja ykkur hvað í alvörunni gerðist og hvernig það er að vera fastur með ofbeldismanni,“ skrifar Kamilla í upphafi færslunnar.
Kamilla var lögð inn á sjúkrahús síðastliðið haust eftir að kærasti hennar gekk í skrokk á henni. Hann var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í kjölfarið.
„Hann losnaði út úr fangelsinu í mars, ég hafði 5 mánuði til þess að vinna úr meðvirkninni minni með hann, ég hafði 5 mánuði til þess að jafna mig á öllu sem hafði komið fyrir mig án þess að vera hrædd að labba út á götu, til þess að fara inn í búðir og þurfa ekki að óttast það að sjá hann hvert sem ég færi.
Hann fékk árs dóm fyrir nokkrar líkamsárásir gegn mér en losnaði út á 5 mánuðum vegna þess að hann var ekki orðinn 21 árs,“ segir Kamilla.
Hún segist alls ekki hafa verið tilbúin þegar hann losnaði úr fangelsinu. Hún segir hann hafa oft reynt að hafa samband við hana þrátt fyrir að hún væri með nálgunarbann gegn honum. Þó hún hafi ekki verið tilbúin að hleypa honum aftur inn í líf sitt hitti hún hann strax eftir að hann losnaði úr fangelsi.
„Þegar hann losnaði hitti ég hann strax, ekki því mig langaði til þess ég hitti hann vegna þess að ég var hrædd um hvað hann myndi gera ef ég myndi ekki hitta hann, hann var alltaf fórnarlambið. Hann var yndislegur fyrstu vikuna en ég var skíthrædd við hann allan tíman því ég var bara að bíða eftir fyrsta högginu.“
Hún segist oft hafa reynt að fara frá honum og fara heim til sín en þá hafi hann ráðist á hana og hótað að drepa hana og fjölskylduna hennar. Hún segir hann hafa haldið hníf upp við háls hennar og útskýrt fyrir henni hvað hann ætlaði að gera við fjölskylduna hennar.
„Ég var skíthrædd, ég öskurgrét úr hræðslu. Þessa nótt hafði ég samband við lögfræðinginn minn klukkan 3 um nótt og við fórum saman upp á spítala um morguninn þar sem ég var með áverka eftir að hann kyrkti mig næstum til dauða og henti mér í jörðina þar sem ég missti meðvitund í smátíma vegna þess að hausinn minn skall svo fast. Ég gat ekki beygt mig, ég gat ekki snúið líkamanum mínum og átti erfitt með að leggjast niður vegna þess að mér var svo illt í líkamanum,“ segir Kamilla.