Besta kynlífsráð ömmu Kardashian

Kim Kardashian og amma hennar MJ.
Kim Kardashian og amma hennar MJ. Skjáskot/Instagram

Það er ekki öllum sem finnst auðvelt að tala um kynlíf við ömmu sína. Kim Kardashian raunveruleikastjarna er ekki ein af þeim, en hún sagði ömmu sinni, MJ, frá því að hún hefði fylgt ráði hennar um að stunda kynlíf fyrir framan arineld. 

Sýnt var frá því í nýjasta þætti Kardashians á dögunum þegar Kardahsian sagði ömmu sinni að hún hefði stundað kynlíf með þáverandi kærasta sínum, grínistanum Pete Davidson, fyrir framan arineld. 

„Við Pete dvöldum á Beverly Hills hóteli síðustu helgi, og við sátum við arineldinn og spjölluðum í margar klukkustundir. Og ég sagði honum að amma hefði sagt mér að maður lifði lífinu til fulls ef maður stundaði kynlíf fyrir framan arineld. Þannig við sváfum saman fyrir framan arineldinn til að heiðra þig,“ sagði Kardashian ömmu sinni. 

Ömmu gömlu fannst frásögnin ekkert skrítin og fannst mestu máli skipta hvort þau hafi nokkuð stundað kynlíf í lobbíinu eða í einrúmi. „Hversu undarlegt er aþð að hugsa um ömmu sína áður en maður stundar kynlíf,“ sagði Kardashian. 

„Ég var ung einu sinni. Ég var yngri,“ sagði MJ. 

Kynlífið við arineldinn virðist þó ekki hafa verið lykilinn að farsælu sambandi Kardashian og Davidson, en þau hættu saman í ágúst eftir níu mánaða samband.

Kim Kardashian og Pete Davidson
Kim Kardashian og Pete Davidson AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda