Fyrirsætan Heidi Klum er í öðru sæti yfir launahæstu fyrirsætur heims. Hún hafði því vel efni á því að spóka sig um í sólinni á Flórída um helgina.
Hún var ekki ein á ferð því eiginmaður hennar, söngvarinn Seal, var ekki langt undan ásamt börnunum fjórum. Hún hefur sjaldan litið betur út og naut þess að eyða tíma með fjölskyldunni.
Á meðan þau eru á Flórída eru þau í fríi á Mar-a-Lago klúbbnum sem er í eigu Donalds Trump.
Seal og Heidi viðhalda ástinni með því að endurnýja hjúskaparheit sín árlega. Þau héldu veisluna einmitt á Flórída á laugardaginn en notuðu sunnudaginn í að slappa af.
Það mættu fleiri hjón taka þau til fyrirmyndar.