Frægasta leikfimisdrottning allra tíma, Jane Fonda sem er 73 ára, sýndi föngulegar línur sínar á rauða dreglinum í Cannes. Hún er augljóslega ekki hætt að gera leikfimisæfingar og borðar ennþá sérlega hollan mat.
Í ljósum kjól með lekkeru munstri fékk hún alla ljósmyndarana til að horfa í áttina til sín. Kjóllinn sem hún klæddist kemur frá Emilio Pucci og er mjög látlaus miðað við hans hönnun því yfirleitt er Pucci í öfgafullum munstrum.
Við kjólinn var hún í samlitum skóm með veski í sama lit. Demantarnir nutu sín í eyrunum og hárið var smekklega blásið. Svona á að gera þetta!