Tónlistarhúsið Harpan var opnuð formlega í gærkvöldi með magnaðri tónlistarveislu. Mikil leynd hvíldi yfir gestalistanum en ljóst er að menningarelítan var á svæðinu. Undirrituð getur staðfest að stemningin var góð á þessu fallega vorkvöldi í Reykjavík. Mikil breidd var í tónlistardagskránni og það sýndi sig vel í gærkvöldi að hljómburðurinn í Eldborg hentar ekki bara fyrir sinfóníur heldur er hægt að rokka í Hörpunni.