Vefsíðan TMZ fer hamförum í umfjöllunum um Arnold Schwarzenegger og barnsmóður hans, Mildred Patty Baena. Nú birtir vefmiðillinn gamlar myndir af þeim þar sem stemningin fer ekki framhjá neinum. Á myndinni má sjá Arnold og Mildred í villtum dansi á heimili leikarans. Á bak við þau er hljómsveit og allt í gangi. Myndin er tekin 1994 eða þremur árum áður en þau eignuðust son sinn.
Önnur mynd á síðunni vekur líka athygli en það er jólamynd sem tekin var árið 2000. Þar eru Mildred og Arnold í góðu yfirlæti ásamt syni hans. Hvernig ætlar maðurinn að snúa sér út úr þessu?