Barnamatur grennir stjörnurnar

Jennifer Aniston og Cheryl Cole hafa lifað á barnamat.
Jennifer Aniston og Cheryl Cole hafa lifað á barnamat. mbl.is/Samsett mynd

Það ætlaði allt um koll að keyra í fyrra þegar fréttir bárust af því að Jennifer Aniston hefði lifað á barnamat á meðan á tökum á myndinni, Just Go With It, stóð til þess að líta sem best út í tökunum. Nú eru sögusagnir um að söngkonan Cheryl Cole hafi borðað lítið annað en barnamat þegar hún var að undirbúa sig fyrir ameríska X Factor og rýrnað töluvert í leiðinni.

Framleiðendur á barnamat í Bretlandi eru himinlifandi yfir þessu því þeir segja að salan hafi stóraukist og það sé greinilegt að það séu ekki bara ungbörn sem lifi á framleiðslunni.

Jennifer Aniston og Cheryl Cole eru ekki þær einu sem taldar eru hafa neytt barnamatar því sagan segir að leikkonan Reese Witherspoon og söngkonan Lady GaGa hafi gert slíkt hið sama. Salan á barnamat hefur aukist um 59 prósent í Bretlandi. Það eru þó ekki allir sammála um ágæti þess að neyta barnamatar.

Næringarfræðingurinn Janine Fahri segir að þetta sé alger della og segir að fólk gæti alveg eins borðað kattarmat til að brennast.

Jennifer Aniston í hlutverki slepjulegs tannlæknis með kynlífsfíkn.
Jennifer Aniston í hlutverki slepjulegs tannlæknis með kynlífsfíkn. mbl.is/New Line Cinema
MARIO ANZUONI
Cheryl Cole er glæsileg kona.
Cheryl Cole er glæsileg kona. Reuters
Reese Witherspoon.
Reese Witherspoon. LUCY NICHOLSON
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda