Cameron Diaz er hætt með kærastanum

Cameron Diaz og Alex Rodriguez meðan allt lék í lyndi.
Cameron Diaz og Alex Rodriguez meðan allt lék í lyndi. mbl.is

Það virðist ganga illa hjá Cameron Diaz að finna ástina. Hún byrjaði með hafnarboltastjörnunni Alex Rodriguez í fyrra. Mikil leynd hvíldi yfir sambandinu í byrjun en svo fóru þau að sjást opinberlega saman. Slúðurkóngurinn Perez Hilton segir að þau séu hætt saman. Aðalástæðan er sögð vera hversu ágeng hún hafi verið við hann. Þessi ágengni gerði það að verkum að hann fékk nóg og bakkaði út úr sambandinu.

Það að parið sé hætt saman er svolítið vandræðalegt því í nýjasta hefti breska Elle segir Cameron Diaz frá sambandinu.

„Við Alex erum saman, það er ekkert leyndarmál lengur," sagði hún í viðtali við Elle.

Á einhverjum tímapunkti var Cameron að íhuga að flytja til Miami til að vera nær ástinni. Sá draumur er algerlega fokinn út í sandinn.

Cameron Diaz og Alex Rodriguez.
Cameron Diaz og Alex Rodriguez. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda