Rómantíkin er ekki að dofna á milli unglingaparsins Justin Bieber og Selenu Gomez. Nú er hún farin að eyða tíma á heimili foreldra hans í Kanada og á dögunum hitti hún ömmu hans og afa. Það eitt ætti að vera merki um að ástin á milli þeirra sé komin til að vera.
Justin Bieber, sem er 16 ára, þótti eiga góða spretti þegar hann krækti í Selenu Gomez, sem er 18 ára. Þau eru nýkomin heim úr fríi úr Karabíska hafinu þar sem þau sáust varla öðruvísi en í faðmlögum.
Það sama er uppi á teningnum í Kanada. Hvert sem þau koma eru þau hönd í hönd eða í faðmlögum. Vonandi endist þetta sem lengst hjá þeim.