Mágkona Giggs hélt við aðra leikmenn

mbl.is/samsett mynd

Nú lítur út fyrir að Natasha Giggs hafi ekki eingögu haldið fram hjá með bróður eiginmanns síns, Ryan Giggs, heldur einnig með a.m.k. þremur öðrum liðsmönnum Manchester United.

Samkvæmt breska götublaðinu The Sun á Natasha að hafa átt í sambandi við þá Dwight Yorke, Phil Bardsley og Danny Simpson. Þeir tveir síðastnefndu hafa þó aldrei leikið stóra rullu í liði United en Dwight Yorke er sjálfsagt frægastur fyrir að eiga barn með Jordan og hafa átt í ástarsambandi við Kristrúnu Ösp Barkardóttir.

Sagan er ekki þarmeð öll því frú Giggs átti víst í ástarsambandi við kornungan sölumann að nafni Lewis White sem er einungis 21 árs gamall. Lewis sagði The Sun að hann hefði svo sannarlega átt í sambandi við Natöshu og að hún væri villt í bólinu.

Eftir að fregnir bárust af sambandi hennar við mág sinn, Ryan Giggs, bað hún hann um að hafa hljótt um samband þeirra en ef marka má fregnir The Sun hefur hann ekki orðið við beiðni hennar.

Ryan Giggs dvelur sem kunnugt er á Spáni ásamt eiginkonu sinni sem stendur við hlið eiginmannsins og blæs á allar sögusagnir þess eðlis að eignmaðurinn hafi verið henni ótrúr.

mbl.is/DailyMail
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál