Söngkona Jennifer Lopez tók sig vel út í þýska sjónvarpinu en þegar hún beygði sig niður blasti geirvartan við alheiminum.
Það vantaði ekkert upp á stælinn á söngkonunni. Hún var í skósíðum munstruðum kjól og með klút í hárinu í stíl. Hárið var skipt í miðju undir klútnum og féllu liðaðir lokkarnir fallega undan honum.
Þátturinn var tekinn upp á Mallorca á Spáni í kvöldsólinni eins og sést á myndunum.
Það eina sem mætti setja út á var hversu fleginn kjóllinn var. Þegar hún beygði sig niður sást glitta í geirvörtuna sem var án efa ekki ætlunin.
Takið eftir litnum í hári söngkonunnar. Hingað til hefur ekki þótt mjög smart að vera með mikla rót í hárinu en nú kveður við annan tón. Að vera með svolitla rót þykir það allra heitasta þessa dagana. Jennifer Lopez er ekki eins stjarnan sem er með slíkan lit í hárinu þessa dagana því Jennifer Aniston er alveg eins.