Þau tíðindi berast frá konungsríkinu Bretlandi að Pippa Middleton og Harry prins séu orðin mjög nánir vinir. Svo mjög, segja spekúlantarnir, að ekki sé loku fyrir það skotið að þau muni fella hugi saman.
Bæði eru þau að jafna sig eftir sambandsslit og hafa leitað eftir stuðningi hvort fá öðru. Að sögn heimildarmanna hittast þau reglulega og tala auk þess oft saman í símann. Þau þykja bæði opin og bráðskemmtileg og yrðu sannkallað draumapar að margra mati.
En Harry á erfitt verk fyrir höndum ef hann ætlar að vinna ástir Pippu. Margir eru um hituna og þeirra á meðal hafa verið nefndir söngvarinn James Blunt, sem er gamall vinur Pippu, Charlie Gilkes, sem er náinn vinur Vilhjálms mágs hennar og svo sjálfur George Percy sem er í senn vinur hennar og fyrrverandi ástmaður.
Það yrði virkilega áhugavert ef að ástir tækjust með parinu enda bæði stórskemmtileg, ung og glæsileg.