Brúðkaupsundirbúningur er á fullu hjá Kim Kardashian og nú hamast hún eins og enginn sé morgundagurinn í ræktinni.
Ungfrú Kardashian ætlar að giftast unnusta sínum, Kris Humphries, í lok sumarsins og er öllu til tjaldað. Hún ætlar ekki að klæðast neinum lörfum því Veru Wang brúðarkjóllinn bíður eftir henni.
Til þess að vera sem kynþokkafyllst á sjálfan brúðkaupsdaginn hefur hún sett sérstaklega mikinn kraft í líkamsræktina.
Heimildarmaður sagði í samtali við more! tímaritið að hún væri tryllt í ræktinni.
„Hún æfir minnst tvisvar á dag, stundum oftar, og er með tvo einkaþjálfara.“
Ungfrú Kardashian er þekkt fyrir fallegan klæðaburð og segir heimildarmaðurinn að hún muni skarta að minnsta kosti þremur kjólum á brúðkaupsdaginn.
Þetta brúðkaup verður án efa eitt af brúðkaupum ársins. Stjörnur á borð við Beyoncé, Jay-z og Justin Bieber eru búin að boða komu sína svo einhverjir séu nefndir.