Victoria Beckham er komin aftur á stjá eftir barnsburð. Hún var mynduð í Los Angeles þegar hún fór út í búð með fjölskyldunni. Hún hefur verið í ströngu aðhaldi eftir að hún eignaðist dótturina, Harper Seven, og ætlaði ekki að láta sjá sig opinberlega fyrr en kroppurinn væri kominn í sitt fyrra horf.
Eins og myndirnar í Daily Mail sýna virðist meðgangan hafa farið vel með Victoriu því hún lítur frekar vel út. Skór skvísunnar vekja athygli, sérstaklega í ljósi þess að hún hefur þjáðs að bakverkjum síðan Harper Seven kom í heiminn. Það hefði því kannski verið heppilegra að vera í öðru en 15 sm Louboutin hælum. Það þýðir víst ekki að reyna að hafa vit fyrir svona skvísum.