Hver tekur mynd af sér alsberri og birtir á Twitter? Jú, Demi Moore, sem leiddist greinilega þegar hún var ein inni á baðherbergi. Myndin sýnir hvorki kynfæri né brjóst heldur bak leikkonunnar. Það á kannski vel við því í gegnum tíðina hefur oft verið minnst á það í fjölmiðlum ytra hvað bakið á henni sér fallegt.
Myndir af naktri Demi Moore, teknar á iPhone-inn, eru ekki fyrstu myndirnar sem fara á Twitter-síðu hennar, því í fyrra tók hún myndir af sér á nærbrókinni og setti inn á síðuna. Það sást reyndar á þessum myndum hvað hún var í fjandi góðu formi. Sem skýrir kannski ýmislegt. Varla myndi kona setja feitabollumynd af sér á þennan samskiptavef, varla nema að vera dálítið ánægð með hulstrið.