Peaches Geldof hefur hríðhorast og það er ekki sjón að sjá á henni handleggina. Hún þverneitar að hún sé á eiturlyfjum.
Ungfrú Geldof, sem er ein af dætrum Bobs Geldofs, var mynduð á tískuviðburði Vivienne Westwood í miðborg Lundúna á dögunum. Á örskömmum tíma hefur hún horast niður. Daily Mail birti MYNDIR af henni þar sem handleggirnir á henni eru eins og á eiturlyfjaneytanda. Hún þvertekur fyrir að vera í dópi og í samtali við Sunday Mirror sagðist hún alls ekki vera á dópi.
Fyrir þremur árum komst ungfrú Geldof í fréttirnar vegna heróínneyslu en þess má geta að móðir hennar, Paula Yates heitin, lést einmitt úr neyslu þess árið 2000.
Þegar Sunday Mirror spurði hana út í þyngdartapið sagðist hún lifa mjög heilbrigðu lífi og vera hætt að borða skyndibita.