Kim Kardashian „eyðilögð yfir skilnaðinum“

KIm Kardashian.
KIm Kardashian. mbl.is/Cover Media

Kim Kardashian grét alla helgina yfir þeirri ákvörðun hvort hún ætti að enda hjónaband sitt eður ei. 

Kardashian giftist Kris Humphries 20. ágúst síðastliðinn og hafa ýmsar getgátur verið í gangi varðandi ástæðu skilnaðarins. 

„Heimildarmenn sem eru beintengdir Kim segja að „KK“ hafi grátið alla helgina yfir ákvörðuninni um það hvort hún ætti að senda skilnaðarpappírana og hafi oft snúist hugur á meðan á ákvarðanatökunni stóð,“ að sögn  TMZ.  Raunveruleikastjarnan vissi víst að það var eitthvað mikið að í sambandinu en efasemdirnar snérust um það hvort hægt væri að bæta úr því eða ekki. 

Samkvæmt TMZ byrjaði álit Kardashian á Humphries að breytast þegar hann réð sér Hollywood-kynningarfulltrúa.  „Hann er ekki hluti af Hollywood.  Hann spilar íþróttir,“ er haft eftir Kardashian.  

Parið skrifaði undir kaupmála áður en þau gengu í það heilaga og þarf raunveruleikastjarnan því ekki að deila auði sínum með Humphries. 

Kardashian-fjölskyldan styður við bakið á Kim og hafa systkini hennar sýnt henni stuðning sinn opinberlega og stutt hana bæði á Twitter og í viðtölum við sjónvarpsstöðina E!. 

Kim Kardashian og Kris Humphries nutu lífsins í brúðkauðsferð sinni.
Kim Kardashian og Kris Humphries nutu lífsins í brúðkauðsferð sinni. mbl.is/DailyMail
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda