Söngkonan Sinead O'Connor tilkynnti í síðustu viku að hún væri skilin eftir aðeins 16 daga hjónaband með Barry Herridge. Nú hefur hún skipt um skoðun og vill hætta við skilnaðinn.
Í morgun setti hún það á Twitter að hún væri hætt við að skilja því þau hafi notið ásta og nú væri allt gott.
„Getið þið hver naut ásta með fyrrverandi eiginmanni sínum í gærkvöldi?“
Parið gifti sig í Las Vegas þann 8. desember síðastliðinn eftir fjögurra mánaða samband. Hún segir að þau ætli að vera áfram saman og vinna í sambandinu.