Linda Gray, sem fór með hlutverk Sue Ellen í Dallas-þáttunum, geislaði á rauða dreglinum á SAG-verðlaununum í gærkvöldi. Leikkonan virðist eldast mun hægar en hinir því hún er 71 árs og virkar ekki deginum eldri en fimmtug. Þess má geta að frú Gray hugsar sérstaklega vel um heilsuna og borðar aðallega hráfæði.
Patrick Duffy, sem fór með hlutverk Bobbys Ewings, hefur ennþá sama sjarmann. Í dag er hann 62 ára og lítur vel út. Það vekur athygli að Larry Hagman, sem fór með hlutverk J.R. í þáttunum, er orðin svolítið rýr með aldrinum, en það kemur þó alls ekki niður á töffaraskapnum. Hann mætti með kúrekahattinn og virtist ekki hafa gleymt neinum töktum.
Á hátíðinni fékk Dallas-hópurinn verðlaun sem besti leikarahópurinn en nýir þættir um Dallas hafa verið búnir til hjá HBO-sjónvarpsstöðinni.