Nicole Kidman á sér þann draum að efla tengslin við eldri börnin tvö, Connor 17 ára og Bellu 19 ára, sem hún á með fyrrverandi eiginmanni sínum, Tom Cruise. Systkinin, sem bæði eru ættleidd, völdu að búa hjá föður sínum þegar hjónabandi foreldra þeirra lauk og hefur samband þeirra og móður þeirra ekki verið náið síðustu árin. Leikkonan þráir að tengjast börnunum sínum á ný og hefur ákveðið að flytjast nær þeim þar sem þau búa í Kaliforníu.
Kidman er búsett í Nashville ásamt eiginmanninum, Keith Urban, og ungum dætrum þeirra tveimur, Sunday Rose þriggja ára og Faith Margaret 14 mánaða. Hún vill að eldri börnin fái að kynnast litlu systrum sínum og ætlar að flytja með alla fjölskylduna til Kaliforníu en Cruise og kona hans Katie Holmes eiga heimili bæði í Los Angeles og í bænum Murrieta.
Haft er eftir vini Kidman í tímaritinu In Touch að leikkonan þrái að börnin hennar fjögur tengist fjölskylduböndum. Vonast hún til að ná betur til Bellu og Connors nú þegar þau eru orðin eldri og þroskaðri.