Les heimspeki og stúderar myndlist

Kim Kardashian er mikið í mun að halda í kærastann, Kanye West, og er til í að leggja ýmislegt á sig til að vekja aðdáun hans. Veruleikastjarnan liggur yfir heimspekibókum til að ganga í augun á rapparanum en hann hefur óbilandi áhuga á fræðunum og les vangaveltur og kenningar þekktra heimspekinga í frítímanum.

Veruleikastjarnan og rapparinn hafa verið par í tvo mánuði og Kardashian vill ólm sýna og sanna fyrir honum að þau eigi ótalmargt sameiginlegt.

„Kim veit að Kanye hrífst mjög af Nietzsche og nú liggur hún yfir verkum hans til að sanna fyrir Kanye að hún er bókmenntalega sinnuð og veltir lífinu og tilverunni fyrir sér af djúpri alvöru,“ segir heimildamaður breska blaðsins The Sun.

West hefur að sögn mikinn á huga á stjórnmálum og fylgist vel með heimsfréttunum og nú hefur Kardashian tileinkað sér áhuga hans á þjóðmálum.

„Kim var fljót til og fékk sér nýtt app í símann sem gerir henni kleift að fylgjast daglega með fréttum CNN og helstu dagblaða heims,“ er haft eftir heimildamanni.

„Kanye er líka mikill listunnandi og nú þræðir Kim auðvitað gallerí og listaverkauppboð og býður í eftirsótt verk.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda