Í næstsíðustu viku gengu Kate Holmes og Tom Cruise um götur miðbæjar Reykjavíkur með kaffi í ferðamáli og allt virtist í himnalagi. Nú berast þær fréttir utan úr heimi að það séu komnir brestir í hjónabandið og þau séu að skilja.
Sænska Aftonbladet hafði samband við kynningarfulltrúa Cruise. Þegar kynningarfulltrúinn var spurður að því hvort þau væru að skilja neitaði hann því ekki. Erlenda pressan heldur því fram að Holmes og Cruise lifi algerlega hvort sínu lífinu og hann sé mjög stjórnsamur og vilji helst ráða því hvernig hún eyði tíma sínum. Í síðustu viku sást til Kate Holmes í New York þar sem hún var á göngu með Suri að kvöldlagi. Var því slegið upp í bresku pressunni að Suri hefði tekið frekjukast og voru þær mæðgur myndaðar í bak og fyrir. Þetta var nokkrum dögum eftir að þær mæðgur dvöldu á Íslandi.
Talsmaður Holmes, Ina Treciokas, gaf ekki skýr svör í gærkvöldi þegar sænska blaðið hafði samband við hana.
Cruise á þrjú hjónabönd að baki. Hans fyrsta eiginkona var Mimi Rogers og svo kvæntist hann Nicole Kidman og ættleiddi með henni tvö börn, strák og stelpu. Connor sonur hans var einmitt staddur á Íslandi í síðustu viku og fóru þeir feðgar í þyrluferðir og skoðuðu náttúru Íslands en Cruise er um þessar mundir staddur á Íslandi við tökur á myndinni Oblivion. Af Twitter-síðu sonarins að dæma kunni hann ákaflega vel við sig á Íslandi.
Það vekur einnig athygli að Holmes mætti ekki á frumsýningu nýjustu myndar Cruise, Rock of Ages.
Tom Cruise verður fimmtugur 3. júlí og var því haldið fram að leikarinn myndi halda stórveislu á Íslandi í tilefni afmælisins og að margar af þekktustu stjörnum Hollywood myndu vera á gestalistanum. Það hefur hinsvegar verið hljótt um afmælisveisluna og Smartland hefur ekki heimildir fyrir því að það sé nokkur veisla í kortunum. Skilnaður Cruise og Holmes gæti verið meginástæðan fyrir því.