Óvænt samkomulag í skilnaðardeilu Cruise og Holmes

Katie Holmes fyrir utan skrifstofu Jonathan Wolfe sem er lögfræðingur …
Katie Holmes fyrir utan skrifstofu Jonathan Wolfe sem er lögfræðingur hennar. Ljósmynd/AFP

Heimspressan er gáttuð yfir nýjustu tíðindum úr herbúðum Tom Cruise og Katie Holmes en þau hafa öllum að óvörum komist að samkomulagi um skilnað sinn og og hvernig honum skuli háttað. Minna en tvær vikur eru liðnar frá því að leikkonan sótti um skilnað frá eiginmanni sínum. 

Jonathan Wolfe, lögfræðingur Holmes, staðfesti síðdegis í dag að samkomulag hefði náðst milli þeirra fyrrverandi hjóna. 

Einstök atriði samningsins hafa ekki verið opinberuð. „Málið hefur verið afgreitt og samkomulag undirritað,“ sagði lögfræðingurinn í yfirlýsingu til bandaríska tímaritsins People. „Við samgleðjumst Katie og fjölskyldu hennar og erum spennt að fylgjast með nýjum kafla í hennar lífi,“ sagði hann jafnframt. 

Nýi kaflinn í lífi leikkonunnar inniheldur meðal annars tökur á nýrri kvikmynd sem hún hefur skrifað handrit að en myndin fjallar um líf einstæðrar móður. 

Búið spil. Hjónabandi Tom Cruise og Katie Holmes er formlega …
Búið spil. Hjónabandi Tom Cruise og Katie Holmes er formlega lokið. Ljósmynd/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda