Örlög Nicole Kidman eru talin ein helsta ástæða þess að Katie Holmes sækir nú um skilnað við Tom Cruise og fullt forræði yfir dóttur þeirra. Katie óttast að með einum eða öðrum hætti nái Tom Cruise að skaða samband hennar við dóttur sína og þvinga hana út úr lífi hennar.
Þetta er eitt helsta umfjöllunarefni helgarinnar í fjölmiðlum um allan heim þar sem sagt er að Katie hafi smám saman áttað sig á því hvernig Tom Cruise hafi náð að snúa börnum sínum og Nicole Kidman gegn áströlsku leikkonunni. Tom Cruise er mjög náinn Bellu sem er 19 ára og Connor, 17 ára. Katie hryllir við því að hennar bíði jafn grimm örlög og Nicole, að missa Suri úr höndunum á sér.
Í dag voru meðal annars birtar fréttir í áströlskum fjölmiðlum þess efnis að Kidman hygðist ekki ræða skilnað fyrrverandi eiginmanns síns, en Nicole Kidman hefur lítið tjáð sig um eigin skilnað við Tom Cruise. Hins vegar hefur það komið fram að Kidman vilji gera allt til að reyna að ná til barna sinna.