Hólmfríður Karlsdóttir, Ungfrú Heimur 1985 og leikskólakennari til nærri 30 ára, tók við viðurkenningu í vikunni fyrir vel heppnaða íbúðarlóð sína og snyrtilegt umhverfi. Garðabær veitti viðurkenninguna.
Aðilar í dómnefnd skoðuðu garðinn að Sunnuflöt á síðasta ári. „Þá stóðu framkvæmdir yfir sem lofuðu góðu, því endurtók nefndin heimsókn í garðinn í ár. Endurbæturnar hafa tekist mjög vel á þessum gamla garði í Flatahverfi. Hönnun frá Landslagi ehf. er stílhrein og opnar dvalarsvæðið á baklóð að lækjarsvæðinu og hrauninu. Mjög snyrtilegt,“ segir í umsögn nefndarinnar.
Alls fengu eigendur fjögurra einbýlishúsalóða, eins tvíbýlishúss og íbúar tveggja fjölbýlishúsa viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi. Snyrtilegasta gatan var valin Hjálmakur og þá fékk IKEA viðurkenningu fyrir snyrtilega lóð. Baldvin Þórarinsson, íbúi við Þórsmörk, fékk sérstaka umhverfisviðurkenningu. Viðurkenningarnar voru afhentar á Garðatorgi á fimmtudag. HÉR má sjá myndir af þeim lóðum sem hlutu viðurkenningar.
HÉR má sjá myndir frá afhendingu viðurkenninga á facebook-síðu Garðarbæjar.