Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, leitaði ekki langt yfir skammt og er nú byrjaður með samstarfskonu sinni, Söru Lind Guðbergsdóttur lögfræðingi. Eiríkur Jónsson greindi frá þessu á síðu sinni. Sara Lind er úr Hafnarfirði en hún keppti í Ungfrú Ísland 2005 eða sama ár og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sigraði.